Arrrg. Við erum komin með nýja heimilistölvu og iMac í þetta sinn. Ég hef aldrei prófað makka áður og er algjörlega handalaus. Ég meika ekki að geta ekki hægriklikkað á hluti og þessi helvítis regnbogakúla sem kemur upp þegar tölvan er að vinna er að gera mig brjálaða. Hún rúllar bara og rúllar en ekkert gerist. Mér tókst að færa hestu gögn yfir, myndir, tónlist og office skjöl en ég get ekki opnað forrit sem ég var með, hvorki þau sem ég reyndi að færa yfir né þau sem ég er að downloada upp á nýtt. Ég er enn með gömlu PC tölvuna í rymjandi og skröltandi gangi við hlið hinnar og skipti yfir þegar ég er alveg að snappa. En hún er ógeðslega flott iMac tölvan hún má eiga það. Voða hipp og kúl viðmót, hvorki snúrur né tölvukassi, risaskjár og lyklaborð sem hrein unun er að hamra á. Mjúkir takkar og fallegt pikkhljóð. Ég svindlaði í vélritunartímum í gamla daga með þeim afleiðingum að ég er aðeins með hálfa fingrasetningu og þarf að skáskjóta augum á lyklaborðið þegar ég skrifa en á þessu lyklaborði virðist ég vélrita eins og vindurinn. Phjúúúúu phjúúúu
3/26/2008 09:37:00 e.h.
Sko sko sko hvað við Svaný erum duglegar. Grisjukjólahönnunarfyrirbærin okkar eru komin á netið og við erum mjög stoltar þótt enginn hafi fest kaup á snilldinni enn þá:
Við héldum upp á kreppuástandið í gær með pompi og pragt. Þegar Hannes mætti í vinnuna og frétti af gengi krónunnar sagði hann bara fokkitt, reddaði pössun og bauð mér út að borða. Ljómandi skemmtilegt kvöld. Enda á maður ekki að láta bjóða sér svona krepputal. Fjármálaheimurinn er byggður á huglægum spilaborgum og fyrst hægt er að tala sig út í kreppu er vel hægt að tala sig úr henni. Þetta á allt upptök hjá illa innrættum og gráðugum alþjóðlegum bankabrúðumeisturum sem stjórna sveiflunum með ráðnum hug með það að lokatakmarki að græða í alla örflögur. Eruð þið ekki búin að sjá Zeitgeist eða...?
3/18/2008 03:51:00 e.h.
mánudagur, mars 17, 2008
Hagkaup. Þar sem Beddu finnst skemmtilegast að versla. Eins og allir sem mig þekkja vita, þýðir að "skreppa" í Hagkaup hjá mér þriggja tíma ferð, tugþúsunda strimill og móral sem jafnast á við verstu fylleríisþynnku. Sem betur fer er ég alla jafna bíllaus á opnunartíma verslana og þótt ég fari í hálfsmánaðarlegar Krónuferðir með fjölskyldunni og daglegar Krambúðarferðir læt ég mér duga að fara ein í ærlegar Hagkaupsferðir kannski annan hvern mánuð. Tilefnið í þetta sinn var að kaupa inn í rómantískan síðkvöldverð. Hannes var að koma heim úr viðskiptaferð (ekki vikuferð til Dubai eða neitt, bara sólarhringsferð til Egilsstaða) og eftir að hafa blaðað í Gestgjafanum ákvað ég að koma honum á óvart með risahörpuskel og andabringu. Þetta var sko andabringa með fimmkryddahunangi og grilluðu mangó-salsa þannig að ég eyddi dágóðum tíma tvístígandi í kryddganginum að leita að fenníku- og stjörnuanísdufti. Ég fann ekkert fenníkuduft, bara fennel sem ég held að sé það sama og svo heilan stjörnuanís. Svoleiðis hafði ég nú aldrei séð áður en hann er mjög fallegur með sterkri lakkríslykt. Þar sem hann var heill gat ég loksins prófað Jamie Oliver kryddhrististaukinn (einhver ný uppfinning í stað mortéls, sem ég hef aldrei notað heldur) sem var einhver fyrirtækjajólagjöf í hittífyrra. Við borðuðum um miðnætti og Hannes var svo þreyttur að ég hefði alveg eins getað kryddað ólseiga andabringuna með salti og pipar, eða bara gefið honum Cheerios. Þetta var ágætt, ekkert stórfenglegt en ég held ég gubbi ef ég kem nálægt svona stjörnuanís aftur. En aftur að Hagkaupum. Það eru danskir dagar um þessar mundir svo ég er afar hamingjusöm og get fengið mér brauð með súkkulaðiplötuáleggi á morgnana. Einnig fann ég bandarískan fjársjóð þar: Kraft makkarónur og ost. Makkarónu og osta pakkaréttirnir sem hafa verið til í íslenskum stórmörkuðum hingað til hafa verið hver öðrum verri, með eitthvað leiðinda táfýlubragð af sér, en Kraft eru með réttu ostablönduna. Ég smakkaði þetta fyrst hjá Elínu mágkonu þegar hún kom úr skiptinemadvöl sinni og hef dreymt um þetta ostabragð síðan. Ég var fyrir skömmu alvarlega að pæla í að panta mér þetta af e-bay þannig að þetta var sérdeilis kærkominn fundur. Ég var alls ekki að fíla Hagkaup sem vinnustað á unglingsárunum en sem roskinn neytandi verð ég að þakka kærlega fyrir mig. Keep up the good work.
3/17/2008 02:34:00 f.h.
föstudagur, mars 14, 2008
Jei, nú er ég ekki bara YouTube áhorfandi heldur framleiðandi líka.
Hér er smá frá Loanshark tónleikunum á Babalú um daginn:
Já það er blogglægð að ganga yfir en ekki nóg með það þá fékk ég einhvers konar melt down í þeirri stöð heilans sem sér um að muna aðgangsorð. Ég gat ekkert tekið út úr hraðbanka, komst hvorki inn á Blogger til að blogga né fjarkennslukerfið í skólanum til að læra og fór bara að spjalla við fólk á MSN í staðinn, ljótur siður sem ég hafði alveg lagt af. Nú er ég að skríða saman í andlitinu, búin að skila af mér bæði skólaverkefni og vinnuskýrslu og halda upp á það með miðvikudagsfylleríi og er að verða good to go.
Í fréttum er þetta helst:
Ég gerði góðverk. Gaf útigangspari pening í sparigrís sem þau drógu glaðhlakkaleg á eftir sér um bæinn. Peningurinn kom greinilega að góðum notum þar sem ég sá þau aftur skömmu síðar afvelta á gangstéttinni í ælupolli. Algjör krútt.
Ég hef undanfarið sótt og útskrifast úr heklunámskeiði þótt ég hafi reyndar verið tossinn. Eyddi t.d. einum tímanum í að reyna að vefja garnhnykil en mistókst hrapallega og skapaði mér heljarinnar flækju. Náði svo að hekla örfáar umferðir á meðan hinir dældu út sjölum og gardínum. Þetta er róandi fingrafimi og fullkomin leið til þess að eyða vandræðalegum þögnum í samskiptum. Maður er annað hvort talandi, hlustandi eða heklandi í stað þess að vera sífellt hugsandi, jammandi og jæjandi. Stofnaði þess vegna í kjölfarið handverksklúbbinn Saumasköp með nokkrum skemmtilegum píum og við áttum vel heppnaðan stofnfund um daginn með kertaljósum, veitingum, hekli, prjóni og umræðum um heimspeki, tannlækna, fæðingar og píkulýtaaðgerðir. Ég er kannski svolítið sein að uppgötva heilunarmátt svona kerlingaklúbba en nú er ég alveg forfallin. Er líka í vikulegum mömmuklúbb með öðrum alveg jafn skemmtilegum stelpum, börnunum þeirra og hverjum listilega framreiddum hádegisverðinum á fætur öðrum. Hann var sérlega fjörlegur um daginn heima hjá mér þegar ég gladdi húsmæðrahjörtun með freyðivíni og appelsínusafa með beikoninu. Ég hélt alltaf að í kerlingaklúbbum væru bara uppþornaðar tuðkerlingar en þessar eru alla vega hverri annarri fjörugri. Svo er líka að komast á mánaðarlegur "hittumstáShalimarogborðumógeðslegasterktogdrekkumCobrabjór" menntaskólavinkonuhittingur, vikulegt hversdagsmatarboð og krakkahittingur hjá Sunnu, regluleg hryllingsmyndakvöld með systkinum mínum og ég veit ekki hvað og hvað. Að hugsa sér að ég hafi farið að grenja yfir því fyrir nokkru að maður eignaðist ekki vini svona "seint" á ævinni. Þeir eru á hverju strái ef maður bara þorir og ef ekki þá er yfirleitt hægt að búa sér til börn til félagsskapar.
Já og svo erum við Hannes og Pétur búin að stofna plötuútgáfuna Ching Ching Bling Bling records, við Svaný systir grisjukjólahönnunarfyrirtækið Fighting Swans og ég myndaði fyrr í kvöld hugmyndarleg drög að stofnun SÓL, samtaka ófaglærðra listamanna.