online
Jafnvel hinn minnsti froskur er mikill í sínum eigin forapolli

 



Ég um mig frá mér

Synir mínir

baby
baby development
Eiginmaður

Fésbók

Mæspeis

Nostalgía

Sexy pin-up girls and their robot lovers

Gamlar ritgerðir

Kennsluréttindi

Kunningjabloggarar
Sbs
Elín - LYKILORÐ
Bogi
Íris
Tinna
Syneta
Unnur
Illfygli
Barbietec
Frú Jóhanna
Skrudduhugs
Skrattakornið
Bryndís RuthDeeza's Diner
Þrítug og þreytt húsmóðir
Egill

Ókunnugir bloggarar
Dr. Gunni
Magga og hausinn
Konan sem kyndir ofninn sinn

Blogglausar síður
RetroCrush
Archie Mcphee

 


Eldra efni
október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 febrúar 2009 maí 2009


Bedda

Berglind Björk Halldórsdóttir Bedda's Facebook profile
 
miðvikudagur, apríl 26, 2006  



Kommasohhh Allir sem vettlingi geta valdið styrkið gott málefni. Ég styrkti um 500 kall og heimabakaða kanilsnúða og kemst því á kreditlistann.



4/26/2006 03:50:00 f.h.

þriðjudagur, apríl 25, 2006  
Nýtt líf?

Það var búið áður en það byrjaði. Ég frestaði afeitrunarmataræðinu því ég hafði ekki tíma til að fara út í búð að kaupa engiferrót, papaya og alfalfa spírur og ég er nú þegar langt á eftir áætlun í vinnuáætluninni minni. Kannski endurhugsa ég þetta allt saman. Líst ansi vel á það sem ég hef heyrt um bókina Franskar konur fitna ekki. Leyfa sér allt en einblína á gæði frekar en magn. Nema hvað að það má að sjálfsögðu ekki drekka gos og borða ruslfæði frekar en fyrri daginn. Þar situr hnífurinn í kúnni. Get ekki hætt í gosinu því ég hef ekki tíma til að fá 2 sólarhringa fráhvarfshausverk. Og talandi um þetta með tímann. Ég bíð í ofvæni eftir að svefnfrestunarlyfið sem verið er að þróa komi á markað og frelsi heiminn undan oki svefnsins. Heyrði nefninlega viðtal við dotor í taugavísindum sem sagði frá því að það sé búið að þróa lyf sem frestar svefnþörf í 48 stundir án þess að maður beri nokkurn skaða af. Síðan er herinn að þróa enn þá sterkara lyf fyrir hermenn. Samt. Ef enginn þyrfti að sofa yrði vinnudagurinn bara lengdur. Hmmmm. Eins og staðan er núna þykir sannað að þeir sem sofi í kringum 7 1/2 tíma lifi lengst. Lengri eða styttri svefn styttir lífaldurinn. Ég sef til skiptis ógeðslega lítið og ógeðslega mikið. Ætli það jafnist þá út eða.... Heyrðu ég byrja alla vega á að drekka meira vatn.



4/25/2006 01:33:00 f.h.

laugardagur, apríl 22, 2006  
Er að spá í að hafa kjúkling í kvöld.

..>



4/22/2006 03:22:00 f.h.

föstudagur, apríl 21, 2006  

Já gleðilegt sumar en mér líður svolítið eins ég sé ekki búin að taka niður jólaseríurnar. Þetta blogg er í bölvaðri órækt eins og svo margt annað hjá mér. Það stendur til bóta en ég veit ekki hvenær. Ég er alveg að skíta á mig í allri tímastjórnun. Ég er búin að snúa sólarhringnum við. Myndir á Barnalandssíðunni eru þriggja mánaða gamlar. Ég þarf að slökkva á símanum á morgnana svo einn vinnustaðurinn minn nái ekki í mig til að biðja mig að vinna. Ég lýg að öðrum vinnuveitanda að ég sé nánast búin með verkefni sem ég er ekki byrjuð á, ég sendi barnið hálfveikt á dagheimilið og Hannes á enga hreina sokka. Samt tókst mér að gúffa í mig nokkrum páskaeggjum, mæta í magadans, horfa á Lost og tvöfaldan Desperate Housweives og búa til MySpace síðu. Held að mér sé ekki viðbjargandi. Á mánudaginn ætla ég að reyna að snúa blaðinu við, byrja á afeitrunarmataræði, fylgja ströngu vinnuskipulagi og reyna að hlusta ekki á röddina í höfðinu á mér sem segir yeah right.



4/21/2006 01:18:00 f.h.

laugardagur, apríl 08, 2006  


Án þess að hafa orðið fyrir slíkri áður er ég nokkuð viss um að tónleikar Deus á fimmtudaginn hafi verið trúarleg upplifun. Hamingja hamingja. Húrra húrra húrra. Þeir lengi lifi. Annars er það að frétta að ég er komin í koffínafeitrun. Þetta er dagur eitt and my head is about to explode. Horfði óvart á alla Heil og Sæl þættina í vinnunni og heilaþvoðist. Vil ekki að blóðið breytist í karamellu. Góðar stundir.



4/08/2006 04:39:00 e.h.

fimmtudagur, apríl 06, 2006  
Ég er búin að vera svo önnum kafin að ég hef ekki einu sinni komið til skila stórfréttum eins og þeirri að systir mín hafi lent í skotárás í Bandaríkjunum. Hinir hefðbundnu fjölmiðlar voru fyrri með fréttina og má lesa hana hér á mbl.is og sjá hana hér í tíufréttum (frekar framarlega). Svaný systir er lengst til hægri. Ég hefði nú örugglega minnst á þetta fyrr ef kúlan hefði lent í þér Svaný mín, en gott að þið eruð allar heilar á húfi. Til að bæta fyrir seinleikann geri ég gott betur en fréttamiðlarnir og birti með góðfúslegu leyfi fórnarlambanna krassandi myndir af vettvangi:

Þetta er hótelið illræmda



Og hótelherbergið. Sjá má byssukúlugat í glugganum.



Ein kúlanna fór nefninlega inn um gluggann



Og út um hurðarkarminn. Reynar ekki út heldur sat hún þar föst.



Síðan er það rúsínan í pylsuendanum, reikningurinn. Ef vel er að gá má sjá að þær fengu aðra nóttina fría due to shooting!



Já það er alltaf hasar í BNA krakkar mínir. Svei mér þá.



4/06/2006 04:13:00 f.h.

mánudagur, apríl 03, 2006  

Varðandi hamingjusóskirnar, just keep'em coming. Við skötuhjúin eigum nefninlega 2 ára brúðkaupsafmæli í dag. Ekki ýkja langur tími en hafa ber í huga að við höfum verið að skiptast á slefi mun lengur eða allt frá því að við hittumst á Bíóbarnum sáluga á því herrans ári '97. Fögnum áfanganum á Lækjarbrekku í kvöld og hellum okkur svo aftur í vinnu en ég er í þrefaldri vinnu þessa dagana og mun því líklega ekki blogga ítarlega fyrr en um páskana. Góðar stundir.



4/03/2006 04:29:00 e.h.

 
This page is powered by Blogger.