Lífið er bara ekki að ganga upp sem skyldi. Ég vildi að ég gæti verið húsmóðir án löngunar til annars og laus við allan þrýsting bæði utan en fyrst og fremst að innan um að vera geðveikt hress og skemmtileg, vera búin að sjá allt það helsta í bíó, leikhúsi og sjónvarpi, fara á tónleika, lesa dagblöð, bækur og tímarit, fylgjast með þjóðfélagsumræðunni og bölsóttast út í spillinguna, verðbólguna og efnishyggjuna, rækta vináttusamböndin, gera eitthvað skapandi ásamt því að vera í námi og starfi, vera voðalega PC í uppeldi og gefa börnunum gæðatíma og lífrænt ræktaða veröld, setja myndir af þeirri veröld á barnalandssíðuna, muna eftir reyna að vera spennandi kvenfang fyrir eiginmannin með því að sparsla meiki yfir ósofna tætta og teygða húðina og þykjast vera til í tuskið og blogga svo um þetta allt saman.
Ég reyndi að ná þessu með því að hætta að sofa á nóttunni og taka power nap á daginn en var orðin yfirmáta viðskotaill og undarleg og þurfti að spyrja sjálfa mig spurningarinnar sem Dr. Phil myndi spyrja:...and hows that working for you? Það var ekki að virka vel svo ég prófaði að fara að sofa á kvöldin. Það gengur heldur ekki. Ég vakna 4-5 sinnum á nóttu til þess að sinna drengjunum og þarf því hvort eð er að taka power blundinn minn á daginn. Með því móti næ ég aldrei að vinna eða læra. Ég hef náð smá árangri í húsmóðursdraumnum mínum, baka pönnsur og sæki heklnámskeið en er í tómu rugli langt á eftir öllum áætlunum í skóla og vinnu. Svo ég er aftur farin að vaka á nóttunni. Og blogga. En ég er farin að taka hylki með grænu tei inní á morgnana. Kannski það geri eitthvað.
2/22/2008 03:20:00 f.h.
miðvikudagur, febrúar 13, 2008
Hannes var að lesa sögu um kanínustrák sem var að velta fyrir sér hvað hann langaði að verða þegar hann yrði stór.
Hannes: Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór Baldur Rökkvi? Baldur: Hestur Hannes: Neiiiiii þú getur sko ekki orðið hestur Baldur: öhhhhh....kanína?
2/13/2008 05:46:00 f.h.
sunnudagur, febrúar 10, 2008
Ný vídeó (frá júní 2007) komin á barnalandssíðuna