miðvikudagur, janúar 30, 2008 Eureka!!! Ég veit hvað er að okkur. Fór að hugsa um rafsegulmengun þannig að auk myglusveppakonunnar pantaði ég dúdda til að tékka á rafmagninu.
1/30/2008 04:36:00 f.h.
mánudagur, janúar 28, 2008
Mér er kalt og það er dimmt. Eiginmaður minn húsasmíðameistarinn fer í vinnuna á morgnana og skilur konuna og börnin eftir heima bíllaus, einangruð og innilokuð í óveðrinu í köldu rafmagnslausu húsi. Ok, svolítið dramatískt en samt, það eru leiðslur fyrir hita í gólfinu sem eru enn ótengdar og rafmagnið sló út og kemst ekki á aftur á gestabaðinu og á ganginum og svo eru öll hin ljósin fokked opp og blikka stanslaust. Þetta er vægast sagt ekki upplífgandi en þegar ég þarf spark í rassinn til að minna mig á hvað ég hef margt til að vera þakklát yfir les ég t.d síður eins og þessa:
Ó sjálfstjórn where art thou!? Kl 5 í nótt/morgun þegar ég var búin að horfa á Nitro og ætlaði að fara að vinna og læra villtist ég inn á síðu um myglusvepagró og var að lokum orðin fullviss um að öll okkar vandamál mætti reka til myglusveppagróa sem hefðu dreift sér um húsið. Fúllyndi okkar hjónanna, höfuðverkina mína, exemið hans Hannesar, eyrnabólgur og kvef strákanna ofl. Þetta passar allt. Það eru fáir gluggar hér, við erum ekki með eldhúsviftu, sturtan lekur og það er rakalykt í kjallaranum. Þótt að peningaplokk ómaði í hausnum á mér sendi ég samt fyrirspurn um að fá einhvern til þess að koma og gera mælingar hjá okkur og gefa ráðleggingar. Síðan fékk ég svo mikið samviskubit yfir því að vera búin að láta börnin alast upp í lífrænum eiturefnum frá fæðingu að ég ákvað að hefja mótvægisaðgerðir og borða bara hollt ónæmisstyrkjandi ofnæmisfrítt fæði starting right now. Samt pantaði ég Dominos í hádeginu sem við borðuðum uppi í rúmi og nú var ég að koma úr Krambúðinni eins og í leiðslu með kókópöffs, beikon, franskbrauð, kók, kúlusúkk, Die Hard 4 og túlípanabúnt. Við erum of djúpt sokkinn, algjörlega myglu- og sykursveppahjúpuð og þurfum komast á eitthvað afskekkt afeitrunarbýli. Hjálp óskast.
On second thought. Myglusveppagró eru lífræn svo kannski eru manngerðu efnasamböndin í kókópöffsinu akkúrat málið við þessu
1/26/2008 05:25:00 e.h.
NITRO
Æ.... elsku dúllurnar
Og hér eru myndir af Jim Gillette í dag. Eftir að glysið hrundi hefur hann greinilega lagst undir bekkpressuna svo enginn þyrði að gera grín að honum.
1/26/2008 04:01:00 f.h.
miðvikudagur, janúar 23, 2008
Nýi borgarstjórinn var læknir á vakt þegar ég fæddist á Fæðingarheimilinu 1977. Eftir að amma (sem var ljósmóðir) hafði tekið á móti mér og ég lá hjá í rólegheitunum í kósí fíling hjá mömmu kom hann víst askvaðandi á tréklossum allt of seinn og ruddist inn með brussugangi og björtum ljósum og eyðilagði stemmninguna. Get ekki séð að mikið hafi breyst.
Svo er ekki séns í helvíti svona fölir og fáir föddídöddíar myndist eins vel með Quentin Tarantino og Eli Roth og Dagur gerði. Dæs.
1/23/2008 02:15:00 f.h.
þriðjudagur, janúar 22, 2008
Þetta er frábærlega frábær mynd svo því sé komið á framfæri.
Hún er meira að segja svo öflug að hún festist í spilaranum. Ég get ekki opnað hann og er komin með 2 daga sekt.
1/22/2008 01:55:00 f.h.
mánudagur, janúar 21, 2008 Booya!
Definition: "Bam!", "in your face", and "hell yeah", all at the same time. A term that self-congratulates, describes excitement, lets others know the magnificence of the celebration as well as the superiority of the user, and is used as an exclamation of those ideas.
Eins stolt af mér og ég þá verð ég að þakka: Huldu fyrir að segja mér að hlusta á kökuna, Maríu sem aðstoðaði mig kremgerð og sprautun og Jónsa sem tússlitaði tannstönglana sem ég límdi á stafina.
1/21/2008 02:49:00 f.h.
laugardagur, janúar 19, 2008
Það byrjar ekki vel maður. Þrátt fyrir nýju Kitchen Aid vélina mína tókst mér að klúðra Betty Crocker köku og þurfti að hringja SOS símtal í Huldu eftir miðnætti og fá ráðleggingar. Ég ætla mér nefninlega að baka svona köku fyrir morgundaginn hvað sem tautar og raular:
fimmtudagur, janúar 17, 2008
Já var að fatta að Halldóri vantar kuldaskó ef einhver í fjölskyldunni er að lesa og vantar gjöf. Veit ekki alveg hvaða stærð hann notar. Hann sparkar af sér öllum skóm og er eiginlega alltaf bara í ullarsokkum.
1/17/2008 05:14:00 e.h.
miðvikudagur, janúar 16, 2008
Hamingjuóskir farnar að berast í kommentum í gamalli færslu þannig að það er ekki seinna vænna en að setja inn nýja til að taka við fleiri
Til hamingju elsku Halldór Hvannar rúsínurass
Hann er reyndar ekki eins sætur núna og á myndinni. Er með einhvern vírus með löngu nafni og svakaleg útbrot alls staðar. Ég sem ætlaði með hann í klippingu fyrir afmælisveisluna. Það skiptir nú ekki miklu máli þegar maður er eins og skrímsli í framan.
1/16/2008 04:47:00 e.h.
fimmtudagur, janúar 10, 2008
Áramótaheitið er löngu sprungið in case anyone was wondering. Það er allt við sama heygarðshornið og fyrir áramót. Allt í drasli og subbi á heimilinu, ég er strax orðin eftir á í vinnunni, skrópaði í staðlotunni í skólanum, krakkarnir ganga sjálfala, það eru unnar kjötvörur í matinn, nýja Kitchen aid vélin horfir á mig ásökunaraugum og eiginmaðurinn er með bullandi stress-exem og ég nenni ekki einu sinni að bera á bakið á honum. En ég tek þetta bara einn dag í einu. Baby steps. Baby steps.
1/10/2008 11:43:00 e.h.
sunnudagur, janúar 06, 2008
Síminn er fundinn. Ég stóð sveitt í marga tíma að brjóta saman þvott úr nokkrum þvottakörfum sem ég hafði troðið inn í skáp fyrir jólin fullviss um að hann leyndist einhvers staðar þar á meðal. Hann var ekki þar og ég var orðinn úrkula vonar en fiskaði hann svo upp úr þvottavélinni stuttu síðar eftir góða þeytivindu. Hann hafði þá sem sagt lent í óhreina tauinu ekki því hreina. Hann lifði þetta af og er nú hlaðinn og kominn í gagnið. Hannes vill meina að við eigum of mikið af fötum en ég segi bara að þetta hefði aldrei gerst ef pólska heimilishjálpin hefði ekki farið í jólafrí.
1/06/2008 03:37:00 e.h.
föstudagur, janúar 04, 2008
Fékk ábendingu um það að það vantaði hlekki á eldra efni hér á síðunni. Þeir voru einu sinni til staðar en virðast hafa dottið út. Þrátt fyrir html lesblindu tókst mér einhvern veginn að koma þeim inn aftur og má finna hlekkina hér neðarlega á síðunni í rauða rammanum til vinstri. Því miður hef ég ekki tíma til að baða mig upp úr minningunum sjálf en ég skoðaði aðeins elstu færslunar og í fyrstu færslunum frá 2002 má t.d finna... "í dag var ég send í kynsjúkdómaskoðun með upptökutæki." þannig að það er af nægu skemmtiefni að taka sem menn geta dundað sér við að skoða svona þegar uppfærslutíðni bloggsins lætur eitthvað á sér standa. Það er alveg dæmalaust hvað ég virðist vera skemmtileg af lestri bloggsins að dæma. Note to self: Muna að panta tíma hjá Greiningarstöð ríkisins.
1/04/2008 06:40:00 f.h.
fimmtudagur, janúar 03, 2008
Síminn er hérna einhvers staðar. Ég hef heyrt hann hringja. Samt gerði ég jólahreingerningu.
1/03/2008 11:17:00 f.h.