laugardagur, september 29, 2007 Aldrei aftur. Ef þið sjáið mig hafa áfengi um hönd aftur skuluð þið snúa mig niður og hringja á lögregluna. Ætla nú að reyna að verða betri maður, kaupa safakúr í Heilsuhúsinu og byrja í Rope Yoga eða einhvern andskotann. (Þetta var samt mjög skemmtilegt afmæli og takk fyrir mig Hafdís)
9/29/2007 11:09:00 e.h.
miðvikudagur, september 26, 2007
Fullt af myndböndum frá febrúar mars og apríl komin inn á Barnalandssíðuna
miðvikudagur, september 19, 2007
Baldur Rökkvi og mamma voru að labba heim af leikskólanum. Þótt leiðin sé ekki löng bar margt merkilegt fyrir augu á leiðinni þar á meðal brunahana. Baldur Rökkvi hafði aldrei séð svoleiðis áður og fór að spyrja út í þetta fyrirbæri. Mamma útskýrði það (að hann geymdi vatn sem slökkviliðsmenn nota þegar þeir þurfa að slökkva eld), Baldur kinkaði kolli hugsi og sagði síðan:
BR: Ég elska brunahana! Mamma: Neeei, þér finnst þeir bara flottir BR: ....Ég elska mömmu Mamma: Já! Ég elska þig líka. BR: Ég elska pabba Mamma: Já BR: Ég elska Halldór Mamma: Já BR: Ég elska ömmu Mamma: Já BR:....Ég elska brunahana!! *Mamma dæsir*
9/19/2007 09:51:00 f.h.
mánudagur, september 17, 2007
Nú er komið skrið á heilsuátakið sem ég er búin að vera að ganga með í huganum. Þökk sé systur minni sem kom færandi hendi frá Baunalandi um helgina gat ég loksins fengið mér rúgbrauð með súkkulaðiplötupålæg og eplasafa í morgunmat í staðinn fyrir hinn venjulega sem samanstendur af kóki og fransbrauði. Þetta er allt annað líf.
9/17/2007 10:41:00 e.h.
föstudagur, september 14, 2007
Jhhiiiiiiiii minn!!! Ég vissi að það var langt síðan ég uppfærði Barnalandssíðuna en gerði mér samt ekki alveg grein fyrir hversu langt það var síðan ég setti inn myndir síðast. Hálft ár!!!! Og það er ansi mikið í lífi drengs sem er núna 8 mánaða. Ég dreif í þessu í kvöld og nú eru páskamyndirnar alla vega komnar inn. Ætla að reyna að setja inn nýjar á a.m.k. vikufresti þar til ég er búin að ná í rassinn á mér. Það er algjör glæpur að leyfa ekki fleirum að dást að því hversu gordjösss þessi fjölskylda er. Gjörið þið svo vel.
Nýja Krónan á Granda er náttúrulega æði eins og allir sem þangað hafa komið eru sammála um en... ég og Elín mágkona verðum að fá að klína þeirri kvörtun á veraldarvefinn að...það er asnalegt að hafa frystivörurnar fremst í búðinni þannig að þær eru orðnar vel þiðnaðar þegar maður er búinn að þræða sig í gegnum búðina. Einnig er það óskiljanlegt að þar eins og í flestum öðrum matvörubúðum er brauðið við innganginn þannig að það lendir neðst í körfunni og kremst. Og hananú.
9/13/2007 10:42:00 e.h.
Ég fór í forskoðun hjá Lasersjón í dag, fékk tíma í aðgerð 12 október og ætti í kjölfarið að geta kysst gleraugun bless. Var búin að ákveða að ég myndi á þessu þrítugasta aldursári annað hvort fara í brjóstastækkun eða augnlaser. Tough call. En nærsýni er hönnunargalli og til verulegra trafala á meðan brjóstastærð- og lögun er aðeins smekksatriði og ég hef með tímanum fundið vissa fegurð í mínum hvað svo sem öðrum finnst. Vinkona mín kallaði þau eitt sinn coneheads-fóstur (takk Hafdís) og þau eru reyndar farin að stefna suður eftir börnin en gætu deffinettlí verið verri. Sjáum til á fertugsafmælinu.
Þetta er stolt mitt og yndi þessa dagana. Ég var að upgrade-a kerrukost heimilisins og fjárfesti í þessari tvöföldu Urban Jungle kerru, grænni með appelsínugulu sætisinnleggi svo hún er svolítið í stíl við bloggsíðuna. Ég held að ég viti núna hvernig svona bíladellukörlum(fólki?) líður þegar þeir renna úr hlaði á draumabílnum sínum. Hún er létt og lipur, smýgur inn um allar dyr, beygir auðveldlega og er á loftdekkjum sem drífa í snjó og torfærum. Storm- og regnplast og töff skiptitaska sem mér sýnist rúma fartölvu fylgdi. Verst að strákarnir orga eins og stungnir grísir þegar ég reyni að fara með þá eitthvað í henni. Vildi að ég hefði getað keypt hljóðeinangrað regnplast.
9/06/2007 02:48:00 f.h.