fimmtudagur, janúar 25, 2007
Við erum búin að vera að aðlagast nýja lífinu í rúma viku núna. Lilli gæti varla verið þægilegri. Allt öðru vísi en bróðir hans sem rak mann á barm örvæntingar frá fyrsta degi og hélt manni þar næsta hálfa árið. Grenjar lítið en drekkur hins vega óhemju mikið og er alltaf fastur á mér. Mér finnst ferlega leiðinlegt að vera svona föst við hann og geta ekki gert allt sem mig langar á daginn á meðan Baldur Rökkvi er í leikskólanum og geta svo ekki einu sinni knúsað BR almennilega og leikið við hann þegar hann kemur heim. Vonandi fer ég bráðum að framleiða meiri mjólk svo hann geti aðeins slakað á soginu. Ég er annars öll að hressast, hætt að vera illt í pjöllunni þegar ég hnerra og svona. Er búin að koma mér í ferleg vandræði með að vera í fjarnámi og taka að mér ýmis önnur verkefni en ætli það sé samt ekki skárra en að hanga á Barnalandi eða glápa á Bíórásina allan daginn í volæði. Svo megið þið endilega koma í heimsókn til mín. Hannes fór í Bónus og keypti allt of mikið af kexi og drasli sem ég þarf að losna við. Hann er búin að vera ofsalega dugleg húsmóðir. Ég þarf alltaf að passa mig að nota sama bollann og borða það sem er að verða útrunnið og svo er hann búin að endurskipuleggja skápa og ég veit ekki hvað. Mér finnst það sexí.
1/25/2007 02:08:00 e.h.
fimmtudagur, janúar 18, 2007
Bingó. Drengurinn fæddist aðfaranótt þriðjudags 16 janúar kl 4:44. 3245 gr og 48 cm.
Ég var farin að finna fyrir verkjum um kvöldið, gat ekki sofið og við fórum niður eftir kl. hálfþrjú. Drengurinn var svo fæddur 4:44. Hljómar stutt og laggott en á meðan á þessu stendur er það engin huggun. Var með glaðloft og nálastungur og alltaf með hugann við hvenær það væri viðeigandi og ekki of aumingjalegt að heimta mænudeyfingu. Loks fékk ég alveg nóg, gat ekki meir og bað um hana en of seint því barnið var á leiðinni út og kom eftir nokkra rembinga. Hljómar auðvelt en þetta er náttúrulega ekki nokkrum manni bjóðandi. En sem sagt, "auðveld" fæðing og fullkominn drengur. Eftir þetta byrjuðu hins vegar leiðindin þar sem það blæddi mikið (missti 1,5 lítra áætluðu þær í lokin) og þær voru heillengi að finna út hvaðan, saumaskapur, yfirlið ofl. en var hress eftir svefn enda barnið með eindæmum vært miðað við eldri bróður sinn og við fengum að fara heim með heimaþjónustu eftir 36 tíma. Þökkum þær góðu kveðjur sem hafa borist. Fleiri myndir á barnalandssíðunni
1/18/2007 04:13:00 f.h.
þriðjudagur, janúar 16, 2007
Jæja. Nú fer að draga til tíðinda. Er með fokkíngs vonda verki með 10 mínútna millibili, ætla að reyna að sofna og fara niðreftir í fyrramálið og láta einhvern hjálpa mér að koma barninu út.
1/16/2007 01:01:00 f.h.
sunnudagur, janúar 14, 2007
Settur dagur í dag og ekkert að gerast frekar en venjulega. Síðast voru allir að fara á límingunum þegar þessum tímapunkti var náð en nú eru menn pollrólegir. Hannes fór meira að segja á smá skrall í nótt. Það hefði nú verið gott á hann að vera fullur/þunnur í fæðingunni en ekki svo skemmtilegt fyrir mig. Línus litli Elínarbarn dreifi athyglinni. Hann braggast vel, mjög mannalegur en með gulu og minnir því á ompaloompana í Kalla og sælgætisgerðinni. Baldur Rökkvi var bara ánægður með hann, klappaði honum fallega og hljóp út um allt gólandi að sækja okkur þegar hann fór að grenja. Það brakaði í heilanum á honum þegar hann sá Elínu gefa honum að drekka. Svo setti hann saman tvo og tvo eða þá að hann hefur fengið flashback, kippti út hjá mér hálsmálinu og ætlaði að ráðast á tittsurnar. Þetta verður nú skrautlegt. Ég fór að pæla í því hvort hann eigi ekki eftir að halda að barnið mitt og Elínar barn séu sama barnið. Þá sagði einhver: "Jú örugglega...þangað til að hann sér þá saman...þá heldur hann að hann sé orðinn geðveikur"! Ég hef reyndar ekki alveg tíma til þess að fæða barnið núna, þarf að ganga frá nokkrum lausum endum. Um miðja næstu viku væri fínt. En auðvitað verður þetta ekkert "fínt", þetta verður skelfilegt. Þetta fæðingarstúss er náttúrulega ekki mönnum bjóðandi. Mér líður núna eins og mér leið á toppi fallturnsins í tívolíinu í Danmörku. Manni langar að hætta við allt saman en það er bara ein leið út úr aðstæðunum og hún verður aldrei annað en hrikaleg.
1/14/2007 05:39:00 e.h.
þriðjudagur, janúar 09, 2007
Nýjar myndir á barnalandssíðunni
1/09/2007 05:04:00 f.h.
laugardagur, janúar 06, 2007
Minn er enn þá í ofninum en Elínu Hannesarsystur tókst að koma dreng í heiminn um ellefuleytið í kvöld (5. jan). Er ekki með tölfræðina á hreinu en hann er víst voða sætur. Var tekinn með sogklukku og varð svolítið sjokkeraður en allir eru að braggast núna og það er bara blússandi hamingja. Baldur Rökkvi vaknaði hins vegar upp með andfælum akkúrat þegar þetta var að gerast og orgaði um stund greinilega ósáttur við að vera ekki lengur algjör miðpunktur í alheimi stórfjölskyldunnar.
1/06/2007 12:57:00 f.h.
|
|