mánudagur, apríl 26, 2004
Hae rúsíkrúsís! Thá erum vid komin aftur í sidmenninguna eftir ad hafa vadid anakonda og krókódílaskít upp ad mitti med kúrekum á sjódheitum sléttum Venezúela. Nú erum vid í fjallabae í Andesfjollum ad reyna ad troda sem mestum aevintyrum inn i dagana hér. Vid byrjudum a thvi ad fara ut ad dansa og í gaer fórum vid thunn i haesta klaf í heimi 4.700 m. og mer vard nu soldid illt í mallanum. Um eftirmiddaginn forum vid i sviflug sem var aedi...og mer var aftur svoldid illt i mallanum thegar eg var ad lenda. Hannesi hefur ekkert verid illt i mallanum og hann er ad batna af solbrunanum, en hann skadbrenndi a ser varirnar og er buinn ad vera svolitid skringilegur i utliti sidustu daga. Nu sit eg her og blogga inn a aevintyraferdaskrifstofu og er ad bida eftir ad fara i svokallad canyoning, sem er einhvers konar sig, sprang nidur i gil og nidur fossa. Mer er aftur svolitid illt i maganum af spenningi, en thetta verdur orugglega aedislegt eins og allt hitt. Thar med likur glaefraferdum okkar og sidustu vikan mun liklegast fara i afsloppun. Úpps thad er verid ad kalla a okkur. Bae!
4/26/2004 01:15:00 e.h.
miðvikudagur, apríl 14, 2004
Hae elsku rusinurassarnir minir! Ég er komin úr fossaferdinni. Hún var ad sjalfsogdu gedveik, serstaklega leidsogumadurinn okkar, indíáninn Mumba. Hann hraeddi líftóruna úr ollum med thvi ad segja okkur fra ondunum sem búa í skóginum, sem taekju stundum upp a hvi ad drepa folk, sérstaklega ef thad vaeri fullt og med laeti. Svo eg var ekki full og med laeti, en nuna er eg komin aftur i Thjodverjatjaldbudirnar og er full thvi vid vorum i gedveikri grillveislu med romm i eftirmat. Eg er buin ad segja ollum ad eg hafi verid med utvarpsthatt a Íslandi og hafi sed Bjork allsbera i sturtu og ad Hannes se i hljomsveit svo ollum finnst vid vera gedveikt kúl. Núna er reggítónlist í botni og gedveikt stud. A morgun forum vid a einhverjar sléttur, á einhvern búgard held eg og faum ad veida píranafiska. Veit ekki hvort eg kemst aftur a netid i ferdinni svo eg bara sendi ykkur stort netknús. Elsku litlu rúsínurassaprumpurnar mínar. Ég elska ykkur!
4/14/2004 01:06:00 f.h.
sunnudagur, apríl 11, 2004
Hólí krapp! Ég bjóst ekki vid ad komast a netid i Venezuela hvad tha ad komast a netid i strakofa! En her sit ég med bjór í annari og romm í hinni (get samt bloggad paeldu hvad eg er klar!) inni i strakofa ad blogga. Vorum ad koma a geggjadan stad eftir 11 tíma rútuferd. Hér eru strákofar, hengirúm, sundlaug, nóg af áfengi og allar graejur, allt tipp topp enda rekid af thjodverja sem tók á móti okkur med bjór í hendi og setningunni velkomm tú mae hóm. Á morgun forum vid i thriggja daga ferd ad skoda haestu fossa i heimi. Sjáumst.
4/11/2004 12:57:00 f.h.
mánudagur, apríl 05, 2004
Ég er á fullu að undirbúa ferðina til Venezúela, lands sem við vitum ekkert um annað en það að þar er mikið um vopnuð rán, sérstaklega á flugvellinum þar sem þau eru framin af leigubílstjórum. Ég er orðin frekar stressuð en er samt enn í skýjunum yfir brúðkaupinu. Ég mun ekki hafa tíma til að blogga ítarlega um það fyrr en við komum aftur í byrjun maí. Kannski þarf ég þess ekki einu sinni þar sem fleiri og fleiri umfjallanir eru að skjóta upp kollinum í bloggheimum. Lesa má um brúðkaupið hjá: Jóhönnu , Sísí, Elínu og Maríu þar sem einnig má finna myndir. Annars eru helstu stikkorðin: I was made for loving you (Kiss) á fótstigið orgel, rósir, freyðivín og gleðiræður, rautt og hvítt vín með graflaxi, rækjuhlaupi, barbie bollum, kúrekakássu, roast beefi, hamborgarahrygg ofl. ofl. Yndislegt fólk í gríðarlegu stuði, syngjandi bakari, kökur og Kólumbíukaffi, brúðardans aldarinnar, Diskótekið Dollý að fara á kostum, Rafgashaus að kúka á sig, Brúðarbandið að rífa upp stuðið með mig í fararbroddi syngjandi Because the Night (Patti Smith) og lag um Hannes, dans, ljósashow og reykur, bjór og brúðarbolla, Herbert Guðmunds coverlag, taumlaus gleði og ást, allt flæðandi í sellófanpökkum og peningafylltum umslögum sem greitt hafa upp brúðkaupsferðina miklu sem hefst í fyrramálið kl. 7. Sjáumst í maí. Knúúúúúúúús
4/05/2004 02:59:00 e.h.
sunnudagur, apríl 04, 2004
Fyrsta bloggumfjöllun um brúðkaupið komin á netið hjá Grétu Hannesarfrænku. Látum það duga í bili, ég þarf að fara að pakka niður fyrir ferðina.
4/04/2004 09:29:00 e.h.
!!!Besti dagur ævi okkar!!!
Takk allir sem tóku þátt og allir sem hugsuðu til okkar. Orð geta ekki lýst þessu en ég reyni síðar.
Þetta var frábært
Við elskum ykkur!
Bedda og Hannes...hjón
4/04/2004 11:36:00 f.h.
föstudagur, apríl 02, 2004
Þetta er að fara að bresta á. 36 tímar í brúðkaup. Enginn tími fyrir kjaftæði. Allt á fullt. Næsta blogg mun koma frá giftri konu. Bæ.
4/02/2004 03:18:00 f.h.
|
|