Hi, it's me again. It's been 15 hours and no sign of code. Just checking in to make sure you have the right e-mail address.
I desperately need the code by this Friday afternoon as I hope to purchase The Two Coreys TV series through iTunes for a nostalgic birtday party I'm having. I'm sure you understand.
Hope to hear from you soon.
Ég er sem sagt ekki enn búin að redda aðalhráefninu fyrir vídeókvöldið í kvöld og svo á ég eftir að taka til í svínastíunni. Ekki er þó öll von úti. Öllum Corey Haim/Feldman fetishistum er velkomið að kíkja til mín í kvöld (klukkan 20 kannski). Ég verð með pig's in a blanket og sykurpúða á grillinu, bíópoppsaltað popp og kannski ég prufi kandíflos-skrapatólið frá Þýskalandi sem kom loksins í gær 3 vikum of seint. Komið með þægilega púða með ykkur.
7/04/2008 04:41:00 AM
fimmtudagur, júlí 03, 2008 22.40 Saga rokksins Seven Ages of Rock: Bandarískt eðalrokk (6:7) Bresk heimildaþáttaröð um sögu rokktónlistar frá því um 1960 og til nútímans. Í þessum þætti er fjallað um bandaríska neðanjarðarpönkið á níunda áratugnum og grönssprenginguna á þeim tíunda. Við sögu koma R.E.M., Nirvana, The Pixies, Kurt Cobain, Black Flag, Pearl Jam, Sonic Youth og The Replacements.
Dæs. Svaðalega var þetta góður þáttur í gær. Fékk gæsahúð og táraðist í lokin. Svíf enn um í nostalgísku grunge skýi. Good times.
7/03/2008 01:04:00 PM
O jæja. Ég tek aftur skammir mínar til fjölmiðla um daginn, þeir geta verið ágætir blessaðir.
Skemmtilegt heimabrugg Peter and Wolf er fyrsta afurð plötufyrirtækisins Ching Ching Bling Bling sem stofnað var nýlega.
Trausti Júlíusson
Peter and Wolf er fyrsta afurð plötufyrirtækisins Ching Ching Bling Bling sem stofnað var nýlega. Á meðal aðstandenda CCBB er Pétur Jóhann Einarsson sem meðal annars var meðlimur í Pornopop, en hann og Bjarki Markússon mynda dúettinn Peter and Wolf.
Tónlistin á þessum frumburði Peter and Wolf er tilraunakennt sambland af tölvupoppi og indírokki og er skemmtilega ólík flestu öðru sem er verið að gefa út í dag. Nú þykir fátt jafn flott og að taka allt upp beint inn á band í sem fæstum tökum og kalla til glás af hámenntuðum hljóðfæraleikurum, en Peter and Wolf eru alveg á hinum endanum hvað sköpunarferlið varðar. Þeir vinna þetta allt sjálfir í heimastúdíóinu sínu og krukka svo í útkomunni, taka út, bæta við og bjaga og klippa inn í tónlistina brot héðan og þaðan, meðal annars samtalsbrot þeirra sjálfra og gamlar sönglagaupptökur frá fjölskyldu Bjarka. Útkoman er skemmtilega skrítið heimabrugg. Ljúfasta indípopp breytist í gamaldags tölvupopp sem þróast yfir í sýrukenndan hljóðagjörning og svo byrjar nýr poppkafli Hljómurinn er "lo-fi" og Peter and Wolf notast jöfnum höndum við kassagítara, gamaldags trommuheila og synta. Söngurinn er oftast ljúfur og melódískur. Það eru sautján verk á plötunni, en mörg þeirra virka frekar eins og bútar en heil lög þannig að platan virkar best spiluð í heild sinni.
Þess má svo geta í niðurlagi að auk þess að gefa út nýtt efni dreifir Ching Ching Bling Bling eldri plötum aðstandenda útgáfunnar. Þannig er nú aftur hægt að nálgast báðar plötur Pornopop og plötuna Óðs manns æði með pönksveitinni Spírandi baunum, allar þrjár frábærar plötur. Til að fá frekari upplýsingar og tóndæmi er rétt að benda á www.chingchingblingbling.com.
TÓNLIST - Geisladiskur Gerum þetta betur seinna Peter and Wolf – Peter and Wolf ***--
Hljómsveitin Peter and Wolf, skipuð þeim Bjarka Markússyni og Pétri Jóhanni Einarssyni, hefur ekki látið mikið fara fyrir sér undangengin ár en sendir nú frá sér margt merkilega frumraun.
Hljómsveitin Peter and Wolf, skipuð þeim Bjarka Markússyni og Pétri Jóhanni Einarssyni, hefur ekki látið mikið fara fyrir sér undangengin ár en sendir nú frá sér margt merkilega frumraun. Platan, sem er samnefnd sveitinni, er óvenjulega fersk þrátt fyrir að vera hlaðin efni sem var hljóðritað á árunum 2002 til 2003. Vinnsla skífunnar er ófullkomin á sjarmerandi hátt, hrá og skrítin en umfram allt skemmtileg en einnig döpur og dimm og á köflum gallsúr. Persónulega finnst mér það sem félagarnir bjóða upp á einkar heillandi og afar skemmtilegt. Hins vegar er þetta tormeltur pakki og alls ekki gallalaus.
Platan er nokkuð löng, heil 17 lög og rúmlega klukkutími í spilun. Svo virðist vera að allt hafi fengið að fljóta með á diskinn, fortíðin skrásett og hreinsað upp úr skúfunum. Mér þykir þettahelsti löstur plötunnar því að þarna birtast, inn á milli, lög sem eyðaleggja heildarsvipinn, lög sem hvorki eru fugl né fiskur, eru tilgerðarleg og þjóna litlum tilgangi. Þetta á hvað helst við flipplögin undir lokin og hið Hot Chip-skotna „Ching Ching Bling Bling“. Að öðru leyti gefur platan skemmtilega sneiðmynd af hugmyndaríkri hljómsveit sem blandar saman tilraunakenndu tölvupoppi við gítarhljóma, drunur, óma og óra. Tónlistin er í heildina dreymin og dáleiðandi en í leiðinni myrk og rómantísk. Einfaldleikinn er nýttur til fulls og listalega vel. Naumhyggjan í hljómagangi og drafandi söngur minnir á hugvíkandi tónlist Spacemen 3 en melódíur Peter and Wolf fá mig til að hugsa til Bang Gang, Brian Eno og Can. Ekkert nema frábært um það að segja enda skemmtilega gert á frumstæðan og frumlegan hátt. Hér hljómar þó allt mun hrárra en hjá þeim listamönnum sem nefndir eru til viðmiðunar og sum laganna hefðu mátt fá betri meðferð en samt ekki því þetta er afar heillandi nálgun í heimi sem stefnir ávallt að fullkomnun.
Upphafs- og lokalag eru af öðrum meiði en meginefni plötunnar, þau eiga meira skylt við kvikmyndatónlist Vangelis (Blade Runner) oghryllingstónlist John Carpenter (Halloween) og eru alveg ágæt sem slík – þó svo að þau hefðu mátt vera styttri eða jafnvel á annarri útgáfu þeirra félaga þar sem þau gera lítið fyrir heildarsvip verksins sem er framsækið og hugvíkandi popp.
Peter and Wolf er ekki fyrir alla en þeir sem gefa plötunni tækifæri og líta framhjá augljósum göllum hennareiga von á ríkulegri uppskeruog umfram allt, ævintýralegri vakningu. Það er gott að láta vaða og gera betur seinna.
Jóhann Ágúst Jóhannsson
Áhugi á listum og náttúru Húsfyllir var í nýuppgerðu samkomuhúsi Flateyjar á Breiðafirði um miðjan júní þegar þar var í fyrsta sinn opnuð málverkasýning.
sigridurp @frettabladid.is
Húsfyllir var í nýuppgerðu samkomuhúsi Flateyjar á Breiðafirði um miðjan júní þegar þar var í fyrsta sinn opnuð málverkasýning. Um var að ræða sýningu á verkum Jóns Bogasonar, rannsóknarmanns og frístundamálara.
Myndefnið tengist allt Flatey eða sjónum á einhvern hátt. Myndirnar eru frá löngu tímabili en Jón fékk ungur áhuga á að mála. "Ég hef alltaf haft gaman af að mála, þá sérstaklega að teikna og ég teiknaði mikið, einna helst botndýr," segir Jón. Hann hefur áður sýnt verk sín en þetta er fyrsta einkasýning hans.
Þegar Jón er spurður hvort hann máli ennþá segist hann ekki gera mikið af því. "Ég hef ekki verið að mála mikið í vetur, ég hef verið hálflatur við að mála síðustu árin," segir hann kíminn. Jón fæddist í Flatey á Breiðafirði hinn 9. apríl árið 1923 og ólst hann þar upp. Áhugi Jóns á náttúrunni kviknaði snemma. "Þegar ég var ungur var ég mikill grúskari og hafði gaman af að fara niður í fjöru í Flatey og skoða hluti eins og steina og marflær," segir Jón. Samt kom honum aldrei til hugar að læra neitt í því sambandi, eins og að verða náttúrufræðingur.
Jón hefur fengist þó nokkuð við myndlist um ævina og ekki kemur á óvart að myndefnið tengist sjónum á einhvern hátt. "Ég mála mest botndýr og landslagsmyndir," segir Jón. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann veturinn 1946-47. "Þegar ég kom suður fór ég í Myndlista- og handíðaskólann í einn vetur og líkaði vel," segir Jón.
Þekktasta málverk Jóns gerði hann áður en hann hóf myndlistarnám. Það ber nafnið Heimkoma víkingsins og var ljósmynd af verkinu forsíðumynd á afmælisriti Hafrannsóknarstofnunar árið 1987. Jón fluttist til Reykjavíkur árið 1953 með Yngva bróður sínum en settist fljótlega að í Kópavogi. "Ég flutti suður að mig minnir af því atvinnutækifærin voru í bænum," segir hann.
Jón hóf störf hjá Hafrannsóknarstofnun við rannsóknarstörf árið 1972 en þá hafði hann lengi starfað sjálfstætt að söfnun skeldýra og annarra sjávarlífvera. Hann hefur meðal annars fundið nokkur hundruð dýrategunda sem ekki voru þekktar áður viðÍsland og nokkra tugi tegunda sem aldrei höfðu fundist áður í heiminum, aðallega skeldýr en einnig krabbadýr. Heil ættkvísl skeldýra hefur verið nefnd í höfuðið á honum og er latneska heitið á henni Bogasonia. Jón fann eina tegund sem talið var að væri útdauð. "Ég fann fyrir nokkrum árum samlokur, ákveðna tegund skelja sem hefur ekki verið vitað um í 250 milljón ár vestur á Breiðafirði og það er það merkilegasta sem ég hef fundið," segir Jón. 7/03/2008 01:55:00 AM
þriðjudagur, júlí 01, 2008
Rosalega var ég sammála þessum finnska kennslufræðingi í Kastljósinu í gær:
Þetta er ein af ástæðum þess að ég mætti ekki í útskriftina mína um daginn. Þegar ég hóf námið komst ég fljótlega að því, sá það og heyrði allt í kringum mig að það er óvinnandi vegur fyrir undirborgaðan kennara með takmarkaðan undirbúningstíma að sérhanna einstaklingsmiðað nám fyrir hvern nemanda í opnu rými í stórum bekk af hegðunartrufluðum krökkum með margsamsettar fjölskyldur og námsörðugleika. Ég komst einnig fljótlega að því að það er ekki vinsælt að gagnrýna þessa dystópísku draumsýn íslenskra skólayfirvalda í verkefnum og ritgerðum. Ég komst upp á lagið með að skrifa um það sem Kennaraháskólinn vildi heyra og fá fyrir það toppeinkun og klapp á bakið þótt það væri þvert á mína sannfæringu. Þess vegna var ég ekkert sérstaklega stolt af áfanganum og þótti lítið til námsins koma. Það gildir það sama í kennslu og í barnauppeldi almennt, að ef maður er sæmilega skynsöm og góð mannvera er langfarsælast að fylgja eigin hjarta í stað þess að hlaupa alltaf á eftir nýjustu straumum og stefnum í uppeldiskenningum.
7/01/2008 12:45:00 PM
laugardagur, júní 28, 2008
Andy Warhol hafði Candy Darling, Michael Alig í Party Monster hafði Christine. Ching Ching Bling Bling Bling hefur SBS.
6/28/2008 02:26:00 AM
föstudagur, júní 27, 2008
Ég verð að segja að ég var svolítið stolt af mér þegar ég borðaði kjötbollurnar í brúnu sósunni með bestu lyst þrátt fyrir að hafa tíu mínútum áður brugðist við kallinu: "Mammmmaaaa, bjóðir (bróðir) minn er að kúka í rúmið mitt!" Þegar ég kom inn í herbergið sat Halldór í rúminu hans Baldurs í kúkaklessu með vatnsmelónubita í annarri hendi og kúk í hinni. Áður en ég náði til hans stakk hann svo vitlausri hendi upp í sig. Svona hversdagslegir atburðir eru steinhættir að hafa nokkur áhrif á mig. Ég hreinsaði barn og umhverfi fljótt og fumlaust og kláraði svo að elda án þess að vorkenna mér hætishót. The Zen of mothers/housewives.
6/27/2008 03:27:00 AM
fimmtudagur, júní 26, 2008
Þetta er frystihúsið sem ég hef í huga fyrir hryllingsmyndakvöldið:
þriðjudagur, júní 24, 2008
Komin aftur. Vantar samt í mig bloggstuðið enn þá. Opnun málverkasýningar afa í Flatey gekk mjög vel þrátt fyrir smá Festen stemming fari í gang þegar stórfjölskyldan kemur saman í litlu húsi. Er þó mjög fúl yfir því að enginn fjölmiðill sinnti fréttatilkynningunni minni. Miðað við prumpið og fréttleysurnar sem birtast dagsdaglega, umfjallanir hvað eitthvað semi-celeb borðaði í morgunmat og hvenær útsaumurinn byrji í einhverri félagsmiðstöð aldraðra finnst mér ekki til of mikils ætlast að þeir sinni skyldu sinni og tilkynni a.m.k um þá menningarviðburði sem reynt er að vekja athygli á.
Er svo bara að reyna að vinna upp það sem sat á hakanum í vinnunni eftir alla þessa skipulagningu Ching partýs og málverkasýningarinnar og ætla svo að slaka rækilega á EN ég fékk óvart hugmynd sem verður þó líklega ekki framkvæmanleg fyrr en í ágúst: Ching chill helgi í Flatey. 25-50 manna hópur gæti farið saman í rútu einhvern föstudaginn til Stykkishólms, farið með Sæferðarbát í siglingu um eyjarnar, veitt Hörpudisk og étið hann um borð og endað í Flatey. Þar myndi verða slegið upp tjaldbúðum, grillað og endað á hryllingsmyndakvöldi í gamla frystihúsinu. Næsta kvöld eftir gott chill í kyrrðinni og góða veðrinu væri hægt að hafa súpu, brauð og tónleika í Samkomuhúsinu, varðeld í fjörunni og bjórkvöld í Saltkjallaranum. Is everybody in?
6/24/2008 02:53:00 AM