|
|
Jafnvel hinn minnsti froskur er mikill í sínum eigin forapolli
|
|
| |
|
|
| |
|
|
|
|
|
| |
föstudagur, nóvember 07, 2008
Sjarmi bloggsins er óðum að dvína og ég er í staðinn djúpt sokkin í hina enn sjálfhverfari Fésbók. Ætla þó að halda áfram að dingla mér hérna þar til ég þori að framkvæma rafrænt sjálfsmorð og flytja á lendarskýlu út í náttúruna.
Málið er að bloggið mitt hefur alltaf verið léttlynt og það virkilega leiðinlega sem á gengur (ekki það að það sé eitthvað algengt) ratar aldrei hingað inn nema í mýflugumynd og dulbúningi. Bloggleysið skýrist því einnig af þjóðfélagsástandinu. Það er rosalega erfitt að vera í stuði á þessum síðustu og verstu.
Ég nenni ekki að halda úti kreppu/krísubloggi en er alveg jafn reið og næsti maður. Hins vegar hef ég ekki miklar áhyggjur þar sem ég á svo góða að. Ef allt fer á versta veg kveiki ég í kofanum, flý land og kem mér fyrir á einfaldari slóðum. Væri löngu búin að því ef ég ætti ekki þessa yndislegu litlu drengi sem maður vill helst ala upp umvafna vinum og ættingjum og í svipuðu umhverfi og maður sjálfur. Ég hef mestar áhyggjur af öðrum börnum þessa lands sem eiga ef til vill foreldra svo þjakaða af kvíða og svartsýni að þau geta ekki sinnt þeim nógu vel. Börn magna upp allar svona áhyggjur. Ég man vel þegar mér fannst ég alls ekki geta haldið áfram að lifa 10 ára gömul því að ég hafði svo miklar áhyggjur af spádómum Nostradamusar eftir einhverja heimildarmynd. Kvöldfréttirnar hljóta að vera að gera aumingja börnin paranoid as hell og ég mjög leið yfir því að þetta muni varpa djúpum skugga á jólin í ár hjá einhverjum.
Ég er líka leið yfir því að það er svo vonlaust að það myndist samstaða um nokkra lausn á þessu ástandi þegar allir eru svona æstir. Illa ígrunduð sundurleit mótmæli og stuðningshópar hingað og þangað. Mótmæla hverju nákvæmlega? Samstaða með hverju? Mótmæla því að hafa það ekki eins gott og áður? Samstaða um það að vera reiður og á bömmer?
Talandi um stuðningshópa og paranojuvaldandi heimildarmyndir. Ég er voðalega hrifin af þeim hugmyndum sem koma fram í nýjustu Zeitgeist myndinni (Zeitgeist addendum) um að afnema peningastefnu, afnema þetta launaða þrælahald, vítahring vaxta og verðbólgu og prófa eitthvað allt annað. En það má alls ekki minnast á þetta við æstan almúgann, sjálfskipaða varðhunda óbreytts ástands sem passa að sá sem reynir að gægjast út fyrir kassann hvað þá hugsa eða stíga út fyrir hann sé úthrópaður rugludallur og eigi ekki einu sinni að fá að taka þátt í umræðunni:
Mbl lokar á hóp Zeitgeist bloggara
Ég er liðsmaður þessa hóps og opnaði Moggabloggsíðu (á Hannesar kennitölu hehe) og eins og aðrir sem gerðu slíkt hið sama, bloggaði ég við fréttir af efnahagsástandinu með því að linka á Zeitgeist myndina. Ég skil vel að það hafi verið pirrandi fyrir einhverja en engu að síður var ekki réttlætanlegt af umsjónarmönnum Moggabloggsins að loka á þessar síður. Þeir bera fyrir sig klausu um að þeir sem bloggi við fréttir verði að tengja það efni fréttarinnar en þar sem umfjöllunarefni myndarinnar er efnahagsástand heimsins og starfsemi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og annarra álíkra stofnana var það skilyrði uppfyllt. Þeir létu sér ekki nægja að loka Zeitgeist bloggunum heldur líka öðrum "venjulegum" bloggum sem þetta fólk hélt úti. !!!Halló!!!! !!!RITSKOÐUN anyone!!?? Nákvæmlega ástæða þess að ég skipti aldrei frá þessu bloggi yfir á íslensk bloggkerfi. Ef umsjónarmönnum líkar ekki það sem þú ert að segja geta þeir alveg köttað á þig. Hins vegar fá blogspot blogg aldrei "commercial" athygli á Íslandi og teljast ekki með í þjóðfélagsumræðunni þar sem þau taka ekki þátt í hinum félagslega viðurkenndu fjölmiðlabáknum.
Nú í léttari fréttum þá festist Halloween farðinn minn svo rækilega á mér að ég var með appelsínugular bólur í viku.
Tékka mig aftur inn þegar ég er í friðsælla skapi. Endilega horfið á Zeitgeist addendum ef þið eigið 2 tíma aflögu:
11/07/2008 12:25:00 AM
|
|
| |
|
|
|