Ég er enn að skríða saman eftir helgina með þeirri angist og tilvistarkreppu sem því fylgir. Partýið gekk vel. Eldspúararnir (Svaný systir og Snorri vinur hennar with a special guest appearancy by Eiríkur á Dillon) rokkuðu, kveiktu ekki í sér og tónleikarnir voru skemmtilegir. Gaman að sjá loksins gamla takta hjá Hannesi sem glöddu grúppíuhjartað. Þurrísinn naut sín ekki nógu vel í vatnskönnunum svo ég hellti restinni í þvagskálina á karlaklósettinu. Það var mjög fallegt en entist ekki lengi og ég fékk ekki að sjá neinn pissa á hann. Menn rétt nörtuðu í kremkexið svo ég á heilmikið afgangs og það er ekki eins og ég þurfi á transfitusýrunum að halda.
Fylleríið eftir tónleikana fór þó út í öfgar eins og gengur og gerist og það gleymdist að mestu að reyna að selja diska og felgulakks-spreyaða einnota boli. Við erum því í bullandi mínus alveg eins og með CCBB partýið í sumar. Ég er sátt við að þetta sé bara til gamans gert og kosti pening eins og önnur áhugamál á borð við mótorkross og fjallgöngur en hljón'stargaurarnir mínir eru enn með einhverjar grillur um að þetta geti borgað sig peningalega. Sé það ekki alveg gerast. Ég er búin að eyða orku og ótal ólaunuðum nóttum við tölvuna í að hugsa um og plögga allt þetta húllumhæ og er orðin voðalega þreytt þótt þetta sé líka mjög gaman. Mig þyrstir í my own moment of glory en það er erfitt að átta sig á því hvaðan hún ætti að koma þar sem ég hef látið yfir þrjátíu ár líða hjá without developing any special skills aðra en að glenna mig andlega á bloggi og feisbúkk :-( And what does it all matter anyway (...hef á tilfinningunni að ég ætti ekki að blogga í þessu hugarástandi)
En það var gaman. Já svaka stuð. Enda allt til gamans gert. Ekki eins margir og ég bjóst við en alveg nóg af skemmtilegu fólki. Spírandi Baunir meira að segja allar saman komnar í fyrsta sinn í langan tíma og hafa haldið sér mjög vel I must say:
Birgitta systir Ragga er förðunarsnillingur og fór hamförum fyrir partýið með latex,sykur og snjósprey og skapaði þetta:
Svo spúðu þau eldi fyrir utan Dillon sem var æðislegt. Dauðlangaði að senda myndirnar á blöðin (þótt þau birti aldrei það sem þau eiga að birta blessaðir hálfvitarnir) en þorði ekki þar sem mig grunar sterklega að það sé ekki beint leyfilegt að leika sér svona með eld á Laugaveginum.
Ég var með næturpössun fyrir báða strákana í fyrsta sinn ever og tók því aldeilis prikið og hljóp með það út í hafsauga ef sú myndlíking er til á annað borð. Var svo stressuð fyrir partýið að ég gleymdi að borða partýpulsurnar sem ég útbjó fyrir hina fyrr um kvöldið og eitt kremkex náði engan veginn að veita öllu áfenginu sem átti að eyða stressinu og feimninni viðnám. Sem betur fer man ég ekki mikið en fólki ber víst saman um að ég hafi ekki náð að gera neinn allt of mikinn skandal. Hannes bar mig svo heim skólausa og ég vaknaði upp með ælu í rúminu. Dömulegt ekki satt. Af hverju er ég að viðurkenna þetta á netinu? Jú því ég vil að þið (vinir og vandamenn sem lesið mig af og til) hjálpið mér að halda áfengisbannið sem ég hef sett mér alla vega út árið. Ég er svo hrædd um að ég eigi eftir að haga mér svo illa að allir verði reiðir við mig og ég eyðileggi jólin.
Átak er sem sagt hafið. Burt með kremkexið og vodkann, ekkert nema piparkökur, malt og appelsín fyrir mig. Djöfull á það eftir að verða boring samt. Það er sko aldeilis vandlifað í þessum heimi.
PS: Hér eru fleiri myndir og hér að neðan eru myndbönd, endilega hrósið þeim svo ég geti fengið óbeint andlegt rúnk af viðurkenningu annarra á því hvað ég lifi litríku lífi: