föstudagur, nóvember 14, 2008

Það er varla að það taki því að blasta því hér inn þar sem það er nú alkunna á fésbók og mæspeis en það verður Skorpulifurs útgáfupartý á Dillon á laugardaginn frá 21-00.
Ég ætlaði ekki að skipta mér af þessu brölti í þeim félögum Hannesi eiginmanni og Ragga tengdafrænda en sogaðist á endanum á nýjan leik í þemapartýsundirbúning og hórulegt fjölmiðlaplögg.
Partýið verður lágstemmdara en hið magnaða Ching Ching Bling Bling partý í sumar sem við erum enn að borga af. Útgáfan hefur verið í dvala síðan vegna skoðanaágreinings, tíma- og peningaleysis. Heimabrugg kemur þó út undir hatti CCBB en er þó frekar óhreint og óskilgetið barn hennar.
Boðið verður upp á íslenskt klakavatn og kremkex auk þess sem ofur-tilboð verður á barnum: ALLT ÁFENGI á 500 kall.
Þemað er tengt lagatitlum disksins, aðallega Eldur og Ís. Eldspúari síðasta partýs hefur verið með Svaný systur í læri og munu þau nú bæði blása eldi á vegfarendur í gervi Elds og Íss. Við reyndum að fá styrk hjá Ölgerðinni til þess að geta boðið upp á Eldur og ís vodka í fordrykk en fengum neitun. Tékkuðum þá hvort Frón væri ekki til í að gefa okkur kex í partýið en þeir tóku það ekki í mál eftir að hafa hlustað á lagið Kremkex á Mæspeis síðu Skorpulifurs. Auk þess báðu þeir um að kremkexmyndin sem fylgdi laginu yrði fjarlægð því, eins og þeir orðuðu það: "þetta er flott lag.....en passar ekki alveg inn í markaðsstefnu fyrirtækisins núna, svo er líka gamalt logo á myndinni sem við erum að skipta út". Skorpulifur bað þá forláts og ókeypis afnot af laginu ef þeir vildu og tóku svo myndina niður enda eru þeir drengir góðir.
Drengirnir eru ekki með eiginlega starfandi hljómsveit en auk þess að renna disknum í gegnum geislaspilarann munu þeir taka nokkur lög á gítar og bassa með aðstoð playbakks af tölvu. Raggi er meira að segja búinn að finna upp nýja aðferð við gítarspilun með hjálp titrara (hann er glænýr by the way, ekki notaður úr dótakassa neins þótt það hefði svo sem verið rokk).
Heyrðu við sjáumst þá bara hress.
11/14/2008 02:04:00 AM
|
|