online
Jafnvel hinn minnsti froskur er mikill í sínum eigin forapolli

 



Ég um mig frá mér

Synir mínir

baby
baby development
Eiginmaður

Fésbók

Mæspeis

Nostalgía

Sexy pin-up girls and their robot lovers

Gamlar ritgerðir

Kennsluréttindi

Kunningjabloggarar
Sbs
Elín - LYKILORÐ
Bogi
Íris
Tinna
Syneta
Unnur
Illfygli
Barbietec
Frú Jóhanna
Skrudduhugs
Skrattakornið
Bryndís RuthDeeza's Diner
Þrítug og þreytt húsmóðir
Egill

Ókunnugir bloggarar
Dr. Gunni
Magga og hausinn
Konan sem kyndir ofninn sinn

Blogglausar síður
RetroCrush
Archie Mcphee

 


Eldra efni
október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 febrúar 2009 maí 2009


Bedda

Berglind Björk Halldórsdóttir Bedda's Facebook profile
 
þriðjudagur, september 16, 2008  



Það sem maður vökvar dafnar og allt það. Ég veit að sökum facebook hef ég verið að vanrækja bloggið en ég er líka í svo mikilli tilvistarkreppu um alla þessa hliðartilveru að ég hef verið að spá í að fremja ekki bara fésbókarsjálfsmorð heldur eyða öllum fingraförum mínum á netinu, bloggi, mæspeisi, barnalandi o.s.frv. Eftir nánari umhugsun hef ég ákveðið að það muni ég ekki gera nema ég ákveði að snúa baki við vestrænum hnattrænum lífstíl yfir höfuð og flytji inn í kommúnu og samyrkjubú í heitu og notalegu landi. Það er meira en að segja það þannig að ég sé fram á að halda uppteknum hætti. Sem sæmilega functional manneskja er alltaf hægt að googla þig hvort eð er og ég vil alla vega vera sjálf þáttakandi í minni eigin hliðartilveru.

Minnsta afkvæmið var loksins að byrja í leikskóla og þar sem ég ætla að halda 50% vinnunni minni og reyna að bæta ekki annarri við strax mun ég kannski hafa smá meiri tíma til að:

Blogga - Feisbúkka - Halda við mæspeis síðum hjá: mér, Búðinni minni, Hljómsveitinni minni, Hljómsveitinni hans Hannesar, CCBB deyjandi plötufyrirtæki sem ég er reyndar hætt í en vorkenni - Halda við Barnalandssíðunni - Læra að htm-ella og stofna: síðu með uppskriftum, síðu fyrir Nostalgíutengda poppmenningu með tengingu við búðina, síðuna Helgarpabbi.is með auglýsingatengdum gróðramöguleikum sökum snjallrar hugmyndar sem ég læt ekki uppi núna svo enginn steli henni - Láta loksins framkalla stafrænu myndirnar, setja í albúm, skrappa, setja í ramma - Skrifa bækur, first off: Retro 50's matreiðslubók með minningarbrotum frá föðurömmu minni - Gera vikulega matseðla og fylgja þeim - Halda húsinu hreinu - Losna við velmegunar/barnseignarbumbuna - Nota gjafakortin sem ég hef fengið síðustu tvö ár og ekki notað - Glæða hjónabandið lífi án þess að kveikja í mínu eigin prumpi - Skipuleggja gæðatíma með strákunum eftir að leikskóla lýkur og veita þeim þá fulla athygli fram yfir háttatíma- Hitta þessa þrjá raunverulegu vini sem ég á oftar í stað þess að dandalast með 96 feisbúkk vinum - Heimsækja ættingja - Læra á "nýju" saumavélina sem hefur legið hér ónotuð í 2 ár - Halda matarboð - Fara í löng böð - Lesa - Hugleiða - Rifja upp magadansinn - Kaupa jólagjafir - Föndra - Skipuleggja skipuleggja skipuleggja ofl ofl ofl

En ég á þó líklegast bara eftir að éta meira drasl og horfa á bíórásina á milli þess sem ég updeita statusinn á feisbúkk.



9/16/2008 03:02:00 AM

 
This page is powered by Blogger.