mánudagur, ágúst 25, 2008
 Ísskápurinn er troðfullur af mat sem er alltaf góð tilfinning jafn þótt ég viti innst inni að ég mun leita ítrekað í kókið og franskbrauðið og láta alla ferskvöru grotna niður, renna út og enda í ruslinu. Við fórum sem sagt í fjölskylduferð í lágvöruverðsverslun og er það svo gífurlega mikið umstang að við reynum að fara ekki oftar en einu sinnu sinni í mánuði. Við bætum það sem á vantar upp með daglegri viðkomu til hinna ástkæru nágranna okkar í Krambúðinni.
Anyway, þá keypti ég hráskinku til að gera einhverja voða fansí smábrauðasamloku með tómötum, ferskum Mozzarella osti og svörtum ólífum í ofni. Ég ætlaði að koma Hannesi á óvart því það er farið að koma fyrir að hann sé heima í hádeginu að stússast eitthvað í tölvunni. Ég útbjó smábrauðin listilega, dúkkaði borð í sólskálanum, hellti pilsner í krúsir og kveikti á kerti. Hann kippti sér svo sem ekkert mikið upp við þetta, skóflaði matnum í sig og rauk í vinnuna en ég var alveg heilluð af fína dögurðinum mínum og ætlaði svoleiðis að hygge mig og njóta hans. Ég kom þó ekki niður nema örfáum bitum því ég fór að hugsa um lýtalækningaþáttinn Dr. 90210 sem ég hafði séð kvöldið áður. Þar var Dr. Gary Alter sem sérhæfir sig í lýtaaðgerðum á kynfærum (genital plastic surgery) að stytta innri skapabarma konu einnar en þeir höfðu lafað niður meira en góðu hófu gegndi og valdið henni óþægindum. Sneiðarnar sem hann skar af og sýndar voru í nærmynd minntu nefninlega óþyrmilega mikið á hráskinku. Ég held ég haldi mig því bara við hversdagsmatinn á næstunni.
8/25/2008 03:21:00 AM
|
|