online
Jafnvel hinn minnsti froskur er mikill í sínum eigin forapolli

 



Ég um mig frá mér

Synir mínir

baby
baby development
Eiginmaður

Fésbók

Mæspeis

Nostalgía

Sexy pin-up girls and their robot lovers

Gamlar ritgerðir

Kennsluréttindi

Kunningjabloggarar
Sbs
Elín - LYKILORÐ
Bogi
Íris
Tinna
Syneta
Unnur
Illfygli
Barbietec
Frú Jóhanna
Skrudduhugs
Skrattakornið
Bryndís RuthDeeza's Diner
Þrítug og þreytt húsmóðir
Egill

Ókunnugir bloggarar
Dr. Gunni
Magga og hausinn
Konan sem kyndir ofninn sinn

Blogglausar síður
RetroCrush
Archie Mcphee

 


Eldra efni
október 2002 nóvember 2002 desember 2002 janúar 2003 febrúar 2003 mars 2003 apríl 2003 maí 2003 júní 2003 júlí 2003 ágúst 2003 september 2003 október 2003 nóvember 2003 desember 2003 janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 ágúst 2007 september 2007 október 2007 nóvember 2007 desember 2007 janúar 2008 febrúar 2008 mars 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 ágúst 2008 september 2008 október 2008 nóvember 2008 febrúar 2009 maí 2009


Bedda

Berglind Björk Halldórsdóttir Bedda's Facebook profile
 
fimmtudagur, ágúst 14, 2008  


Eins afbrýðisöm og ég var út í Svaný systur fyrir að vera á leið á Reading þá hefði ég nú aldrei óskað henni þess sem hún og vinir hennar eru að lenda í núna:

> ---------------------------- Original Message ----------------------------
> Subject: Breyting á Reading Festivalinu Áríðandi
> From: E-mail box Út í heim
> Date: Tue, August 12, 2008 1:47 pm
> --------------------------------------------------------------------------
>
> Ágætu farþegar,
>
> Okkur þykir mjög leitt að tilkynna ykkur að við vorum að fá tilkynningu
> frá samstarfsaðila okkar í Bretlandi að af óviðráðanlegum ástæðum getum
> ekki fengið 3 daga tónleikapassa á Reading Festivalið eins og um var
> talað. Við getum eingöngu fengið 2 daga tónleikapassa sem gilda á svæðið
> á laugardag og sunnudag á umsömdu verði, passinn gildir ekki föstudaginn
> 22.ágúst.
>
> Við getum boðið ykkur að endurgreiða ykkur ferðina að fullu eða að fljúga
> ekki út fyrr en á föstudaginn, hvort sem þið viljið heldur, og að
> sjálfsögðu getið þið flogið út eins og gert var ráð fyrir á fimmtudaginn
> 21.ágúst.
>
> Vinsamlega staðfestið við okkur með að senda okkur línu að þið hafið
> móttekið þessi skilaboð og ef þið viljið hætta við eða breyta fluginu
> ykkar þá er því fyrr því betra.
>
> Með bestu kveðju,
>
> Sölustjórn Icelandair



Þvílíkt klúður!!!! Í pakkaferðinni átti að vera: flug og 3 daga helgarpassi á hátíðina (tjaldstæði innifalið) og fararstjóri (Matti í Popplandi Rásar 2). Nú í gær, með viku fyrirvara fékk hópurinn að vita að vegna mistaka Icelandair gætu þau ekki fengið aðgang að hátíðinni á föstudeginum (sem er mjög stór tónleikadagur - Rage Against the Machine ofl). Í stað þess að fá flug út á fimmtudegi og 3 daga passa með tjaldstæði yfir helgina sitja þau uppi með tvo dagspassa á laugardag og sunnudag en dagspössum fylgja ekki tjaldstæði svo þau bæði missa af fyrsta deginum og eru algjörlega án gistingar. Icelandair er ekki tilbúið til þess að gera neitt nema endurgreiða ferðina. Þetta er afar súrt í broti með svona stuttum fyrirvara. Fólk er eðlilega búið að hlakka mikið til, skipuleggja ferðina og fá frí úr vinnu.

Það er formlega uppselt á hátíðina en sagan segir að hægt sé að redda miðum á tvöföldu verði þannig að hópurinn gæti sjálfur reynt að kaupa flug með Iceland Express og redda sér pössum annars staðar en hvers vegna ættu ferðalangarnir að þurfa að punga út fyrir mun dýrari ferð með auknu umstangi vegna mistaka Icelandair. Icelandair ætti að sjá sóma sinn í því að redda málunum. Eina ástæða þess að fólk kaupir sér pakkaferðir yfir höfuð er að losna við vesen og vera 100% öruggt um að allt gangi upp.

Ég sendi tilkynningu um þetta til fjölmiðla nú í nótt. Vonandi sjá þeir fréttaefnið í þessu og þvinga Icelandair til að reyna að bjarga andlitinu og koma betur til móts við hópinn í kjölfarið.

Ussumfuss. Þeir hefðu aldrei hegðað sé svona væri þetta hópur miðeldringa á leið á Jose Carreras tribute tónleikahátíð eða eitthvað.



8/14/2008 04:25:00 AM

 
This page is powered by Blogger.